
2 okt. 2025
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 05/2025-2026
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Magnús Helgi Lúðvíksson, leikmaður Álftanes B, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Álftaness B gegn Vestra í 2. deild karla , sem fram fór þann 20 september 2025.
Agamál 06/2025-2026
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Giannis Agravanis, leikmaður Stjörnunnar, sæta 15.000 króna sekt vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar gegn Álftanes, sem fram fór þann 23 september 2025.
Agamál 7/2025-2026
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Leikmaður, leikmaður Stjörnunnar/KFG, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Skallagríms gegn Stjörnunni/KFG, sem fram fór þann 23 september 2025.