23 maí 2001Í dag var tilkynnt hvaða leikmenn hafa verið valdir til að leika fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikum smáþjóða í San Marínó og í tveimur fyrstu leikjum Íslands í undankeppni Evrópumóts landsliða. Einn nýliði er í hópnum, Guðlaugur Eyjólfsson úr Grindavík. Landsliðið er annars skipað eftirtöldum leikmönnum: Herbert Arnarson, Valur, bakvörður, 31 árs, 193 sm, 97 landsleikir. Helgi Jónas Guðfinnsson, Ieper, bakvörður, 25 ára, 186 sm, 52 landsleikir. Friðrik Stefánsson, UMFN, miðherji, 25 ára, 204 sm. 43 landsleikir. Páll Kristinsson, USC, framherji, 25 ára, 200 sm. 27 landsleikir. Fannar Ólafsson, USC, framherji/miðherji, 23 ára, 203 sm. 18 landsleikir. Baldur Ólafsson, Long Island, miðherji, 22 ára, 208 sm. 19 landsleikir. Sævar Sigurmundsson, Alabama, framherji, 21 árs, 198 sm. 4 landsleikir. Guðlaugur Eyjólfsson, UMFG, bakvörður, 21 árs, 188 sm. 0 landsleikir. Logi Gunnarsson, UMFN, bakvörður, 19 ára, 190 sm. 9 landsleikir. Jón Hafsteinsson, Keflavík, bakvörður/framherji, 19 ára, 196 sm. 1 landsleikur. Hreggviður Magnússon, ÍR, bakvörður/framherji, 198 sm. 3 landsleikir. Jón Arnór Stefánsson, KR, bakvörður, 195 sm. 8 landsleikir. Þjálfari liðsins er Friðrik Ingi Rúnarsson og aðstoðarmaður hans er Ísak Leifsson. Liðið heldur áleiðis til San Marínó á laugardaginn, en fyrsti leikur Íslands á mótinu verður þriðjudaginn 29. maí gegn Andorra. Smáþjóðaleikunum lýkur með úrslitaleik 2. júní og þar vonumst við til að íslenska liðið verði að leika. Eftir leikana verður haldið til Sviss og Írlands þar sem leiknir verði leikir í undankeppni EM.