26 apr. 2024Úrslit 1. deildar kvenna hefjast í kvöld föstudaginn 26. apríl þegar Aþena tekur á móti Tindastól í fyrsta leik úrslitanna, en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki, tryggir sæti sitt í úrvalsdeild á næstu leiktíð.

Leiktímar leikjanna eru 19:15 nema í leik fimm, ef til kemur, sem fer fram laugardaginn 11. maí kl. 16:00.
 
Hægt er að fylgjast með leikjadagskrá úrslitanna hérna.
 
(2) Aþena – (4) Tindastóll
Leikur 1          26. apríl            Aþena – Tindastóll 
Leikur 2          29. apríl            Tindastóll – Aþena
Leikur 3             3. maí            Aþena – Tindastóll
Leikur 4*           7. maí            Tindastóll – Aþena *ef með þarf
Leikur 5*           11. maí          Aþena – Tindastóll *ef með þarf