31 maí 2001Þær breytingar voru gerðar á undanúrslitakeppni Evrópumóts landsliða, á þingi FIBA í Bad Kreuznach í Þýskalandi um síðustu helgi, að fyrirkomulagi Evrópumóts landsliða var aftur breytt í það horf sem keppnin var fyrir úrslitakeppnina 1999. Þetta þýðir að riðlarnir verða 5 talsins, sex lið í hverjum riðli og þjóðirnar sem taka þátt í undanúrslitariðlinum verða því aftur 30 talsins. Í undanúrslitakeppninni sem lauk sl. vetur voru riðlarnir aðeins 4. Þá komust þjóðirnar sem urðu í sætum 2-7 í úrslitakeppninni þar á undan beint í næstu úrslitakeppni og þurftu því ekki að taka þátt í undanúrslitakeppninni. Í ljós kom að þessar þjóðir skorti verkefni fyrir landliðin sín og þær vildu því aftur fá að keppa í undanúrslitariðlunum í stað þess að sitja hjá án alvöru landsleikja. Eftir úrslitakeppnina í Tyrklandi í september nk. munu því aðeins nýkrýndir Evrópumeistarar og gestgjafarnir Svíar fara beint í úrslitakeppnina sem haldin verður í Svíþjóð 2003. Þar verður leikið í riðlum í Boras, Lulea, Norrköpping og Södertälje. Úrslitakepppnin verður síðan í Stokkhólmi. Þetta eru í raun góðar fréttir fyrir okkur Íslendinga því þetta þýðir að verði landsliðið okkar í undanúrslitakeppninni ásamt öllum stóru þjóðunum nema EM-meisturunum, er góður möguleiki á að lenda með sterkum þjóðum í riðli. Það væri ekki amalegt að fá að sjá t.d. ítalska, spænska eða gríska landsliðið etja keppi við okkar menn í höllinni. Þær 30 þjóðir sem verða í næstu undanúrslitakeppni verða því: Þjóðir 2-16 í EM í Tyrklandi í haust, þjóðir 5 sem sátu eftir í 3.-4. sæti í síðustu undanúrslitakeppni (Belgía, Makedónía, England, Holland og Pólland), þjóðirnar 2 sem komust áfram úr síðustu forkeppni (Kýpur og Danmörk) og þær 8 þjóðir sem komast áfram úr undankeppninni í sumar (þar keppir Ísland í riðli með Finnlandi, Írlandi og Sviss og tvær efstu komast áfram). Fjórir slíkir riðlar verða í gangi í sumar. Meira um Evrópukeppni landsliða og önnur mót á vegum FIBA í [v+]http://www.kki.is/kistan.asp[v-]kistunni[slod-], þar sem nýjustu fréttatilkynninguna frá FIBA er að finna.