5 jún. 2001Landsliðið okkar er komið til Sviss þar sem erfiður leikur gegn heimamönnum bíður þess á morgun. Leikið verður í 2 þúsund manna höll í borginni Nyon sem stendur við Genfarvatn, í um 20 km. fjarlægð frá Genf. Dagurinn í gær var notaður til hvíldar, en um kvöldið var hörkuæfing í tvo tíma. Í dag var síðan aftur æfing, en leikurinn gegn heimamönnum er kl. 20 að staðartíma eða kl. 18 að íslenskum tíma. Allir strákarnir eru heilir og klárir í slaginn í leikinn á morgun. Svisslendingar mættu Írum á laugardaginn á heimavelli og unnu 67-58. Lágt stigaskor sem bendir til góðs varnarleiks. Hittni Svisslendinga var góð úr tveggja stiga skotum eða 51,3% sem þýðir að þeir skora mikið undir körfunni. Hittnin úr þrigga stiga skotum var ekki eins góð eða 38,5% og þeir gerðu aðeins 5 slíkar körfur úr 13 tilraunum. Vítahittni þeirra var slök eða aðeins 54,5%. Þá tapaði liðið 23 boltum, en stal aðeins 13. Með sigri í leiknum á morgun myndi íslenska liðið stíga mikilvægt skref í áttina að því tryggja sér sæti í undanúrslitakeppni fyrir EM í Svíþjóð 2003. mt: Herbert Arnarson fyrirliði íslenska liðsins átti góða leiki með liðinu í San Marínó.