9 jún. 2001Ísland tapaði fyrir Írlandi 70-59 í undankeppni EM í körfuknattleiks í Dublin í kvöld. Staðan eftir leikhlutanan var 20-17, 38-34, 50-48 og lokatölur 70-59. Í fjórða leikhluta fóru Írar heldur betur í gang og settu hverja þriggja stiga körfuna á fætur annarri og uppskáru 11 stiga sigur. Næstu leikir Íslands verða í ágúst. Jón Arnór Steánsson, Helgi Jóns Guðfinnsson og Friðrik Stefánsson voru stigahæstu leikmenn íslenska liðsins í kvöld með 11 stig. Sævar Sigurmundsson gerði 10, Herbert Arnarson 8 Fannar Ólafsson 6, Logi Gunnarsson 4 og Hreggviður Magnússon 3. Friðrik tók 11fráköst Fannar 6 og Jón Arnór gaf 5 stoðsendingar.