22 júl. 2001Íslenska unglingalandsliðið sem tekur þátt í Promotion Cup kvenna á Kýpur lék sinn síðasta leik á mótinu gegn Skotlandi, og var sá leikur úrslitaleikur um þriðja sætið í mótinu. Leiknum lauk með sigri Skota 45-54. Staðan í hálfleik var 23-19 fyrir Íslandi. Stigahæstar í íslenska liðinu voru María Anna Guðmundsdóttir með 12 stig og Guðrún Guðmundsdóttir með 8 stig. Að sögn Péturs Hrafns Sigurðssonar fararstjóra var um besta leik íslenska liðsins í keppninni að ræða. Fyrri hálfleikur var mjög góður hjá liðinu, og leiddi Ísland með 4 stigum í hálfleik. Slæmur kafli í þriðja leikhluta réði hinsvegar úrslitum, þar sem skoska liðið skoraði 17 stig í röð. Fyrir utan þennan slæma kafla var leikurinn í góðu jafnvægi milli liðanna. Gætt hefur meiri stöðugleika í leik íslensku stúlknanna, og liðið vaxið með hverjum leik að sögn Péturs Hrafns. Eftir leikinn hafa stúlkurnar fengið kærkomið sólarfrí, og fá að flatmaga við sundlaugina í 40 stiga hita. Ætlunin er eftir það að fylgjast með úrslitaleik mótsins á milli Kýpur og Luxemborgar, en eftir það verður lokaathöfn og lokahóf mótsins. Liðið leggur svo af stað kl. 1:30 í nótt til flugvallarins í Larnaca, og áætlaður komutími til Íslands er um kl. 16 á morgun, mánudag.