23 nóv. 2001Njarðvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitum Kjörísbikarsins í kvöld í fyrsta sinn er þeir sigruðu KR-inga með einu stigi 66-65 í æsispennandi og stórskemmtilegum leik. Þeir mæta nágrönnum sínum úr Keflavík en þeir lögðu Þórsara með 91 stigi gegn 77. Leikurinn fer fram á morgun laugardag í Smáranum í Kópavogi og hefst kl. 16.00 Leikur Njarðvíkinga og KR-inga var jafn og spennandi allan tímann og munaði aldrei meira en 5 stigum á liðunum allan leikinn. Undir lok leiksins komust Njarðvíkingar yfir með þriggja stiga körfu frá Brenton Birmingham 64-62. Helgi Magnússon svaraði með þriggja stiga körfu þegar innan við 8 sekúndur voru eftir af leiknum og KR-ingar yfir 64-65. Eftir leikhlé Njarðvíkinga brunaði Brenton upp allan völl og reyndi skot, KR-ingar ná að slæma hönd í knöttinn sem barst til Friðriks Stefánssonar sem lagði hann ofaní og fékk víti að auki sem hann misnotaði. Þá voru eftir 0.64 sekúndur á klukkunni, of stuttur tími fyrir KR-inga til að ná sókn. Þórsarar byrjuðu betur en Keflvíkingar og voru yfir fram í miðjan fyrsta leikhluta. Þá tóku Keflvíkingar mikinn kipp, náðu öruggri forystu sem þeir létu aldrei af hendi. Undir lok leiksins hljóp spenna í leikinn er Þórsarar náðu að minnka muninn í 6 stig eftir að hafa skorað 7 stig í röð, en Keflvíkingum urðu ekki á nein mistök og sigruðu með 91 stigi gegn 77. Það verða því Njarðvíkingar og Keflvíkingar sem mætast á morgun laugardag í úrslitum Kjörísbikarsins. Leikurinn fer fram í Smáranum í Kópavogi og hefst kl. 16.00. Verði sá leikur jafn skemmtilegur og leikirnir í kvöld er ástæða til að hvetja körfuknattleiksunnendur til að koma og sjá frábæran körfubolta. Alls voru um 800 áhorfendur í Smáranum í kvöld.