24 nóv. 2001Íslandsmeistarar Njarðvíkinga urðu Kjörísbikarmeistarar í fyrsta sinn eftir 40 stiga sigur á Keflavík, 109-69, í úrslitaleik í Smáranum í dag. Njarðvík komst í gær í fyrsta sinn í gegnum undanúrslitin í sjöttu tilraun og varð í dag fjórða félagið til að vinna titilinn sem fyrsta var leikið um haustið 1996. Keflvíkingar komust aldrei yfir í leiknum, Njarðvík leiddi með 12 stigum eftir fyrsta leikhluta, 25-13, með 30 stigum í hálfleik, 56-26 og 36 stigum eftir þriðja leikhluta, 79-43. Njarðvíkurliðið vann fráköstin 57-27 og gerði 14 þriggja stiga körfur í leiknum. Brenton Birmingham gerði 30 stig fyrir Njarðvík auk þess að taka 9 fráköst og gefa 8 stoðsendingar. Brenton nýtti öll tíu víti sín og hitti úr 8 af 13 skotum utan af velli. Logi Gunnarsson skoraði 19 stig, Sævar Garðarsson gerði 17 á 20 mínútum, Ragnar Ragnarsson var með 12 stig og Friðrik Stefánsson gerði 12 stig og tók 20 fráköst, þar af 9 í sókn. Teitur Örlygsson gerði 8 stig, tók 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar á 20 mínútum en sat á bekknum og fylgdist með sínum mönnum síðustu 14 mínútur leiksins. Páll Kristinsson var með 8 stig og 9 fráköst. Hjá Keflavík skoraði Damon Johnson mest eða 24 stig, Jón N. Hafsteinsson varð með 11 stig og 9 fráköst og Davíð Þór Jónsson gerði 8 stig. Úrslitaleikir 1996-2001 1996: Keflavík-KR 107-101 1997: Keflavík-Tindastóll 111-73 1998: Keflavík-Grindavík 88-81 1999: Tindastóll-Keflavík 80-69 2000: Grindavík-KR 96-73 2001: Njarðvík-Keflavík 109-69