9 feb. 2002Sú nýlunda verður í sjónvarpsútsendingu Sýnar á bikarúrslitaleik karla að dómarar leiksins verð með hljóðnema á sér sem tengdir verða við útsendingu Sýnar. Þessi beiðni kom frá Sýn og að vel athuguðu máli var ákveðið að prófa þetta og vita leikmenn beggja liða af þessu. Dómararnir verða þó ekki í loftinu allan tímann heldur munu tæknimenn hækka og lækka eftir því sem þeir vilja.