22 feb. 2002Ljóst er að mótahald í kvöld og um helgina mun raskast vegna veðurs og ófærðar. Nokkrum leikjum sem vera áttu í kvöld hefur verið frestað. Þetta eru leikir KFÍ - Selfoss, ÍA - ÍG og Ármann/Þróttar - Þórs Þorl. í 1. deild karla, Skallagrímur c - Reynir H. í 2. deild karla og KR - Tindastóls í bikarkeppni ul.fl.ka. Þá hefur fjölliðamóti í 7. flokki karla c-riðli sem vera átti í Stykkishólmi um helgina einnig verið frestað.