2 apr. 2002Stúdínur unnu í kvöld fyrsta leikinn gegn KR í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001402.htm [v-]lokaúrslitum[slod-] um Íslandsmeistaratitil kvenna. ÍS vann leikinn [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001402/14020401.htm [v-]86-82[slod-] en staðan var 74-74 eftir venjulegan leiktíma. ÍS komst mest 17 stigum yfir þegar tæpar sjö mínútur voru eftir en KR-liðið gafst ekki upp, vann upp foskotið og Guðbjörg Norðfjörð tryggði KR framlengingu með því að skora þriggja stiga körfu um leið og leiktíminn rann út. ÍS hafði síðan betur í framlengingunni. KR vann fráköstin í leiknum 58-30 þar af tóku KR-stúlkur 18 fleiri sóknarfráköst í leiknum. Töpuðu boltarnir voru hinsvegar 27 hjá KR eða átta fleiri en hjá Stúdínum. Meadow Overstreet átti frábæran leik hjá ÍS og gerði 33 stig og gaf 5 stoðsendingar en Alda Leif Jónsdóttir var með 20 stig, 7 stolna bolta, 6 fráköst og 4 stoðsendingar. Þá var Lovísa Guðmundsdóttir með 8 stig og 6 stoðsendingar og Svana Bjarnadóttir gerði 8 stig og sex af stigum sínum í fjórða leikhluta. Hjá KR var Guðbjörg Norðfjörð með 28 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar, Helga Þorvaldsdóttir gerði 15 stig og gaf 6 stoðsendingar og Gréta María Grétarsdóttir var með 13 stig, 10 fráköst, 6 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Það má finna tölfræði leiksins [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001402/14020401.htm[v-]hér[slod-] en einnig er hægt að finna fleiri fróðlegar tölur úr þessum fyrsta leik undir greinum hér á KKÍ-síðunni. Hægt er að nálgast þær tölfræðipælingar [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=74[v-]hér[slod-].