5 apr. 2002ÍS vann í kvöld KR, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001402/14020501.htm[v-]75-78[slod-], í KR-húsinu í öðrum leik liðanna um Íslandsbikar kvenna í körfubolta. ÍS er þar með búið að vinna tvo fyrstu leikina og þarf aðeins einn sigur til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Líkt og í fyrsta leiknum þurfti að framlengja þennan leik en staðan var 66-66 eftir venjulegan leiktíma. Nú var það ÍS sem jafnaði leikinn en Hafdís Helgadóttir skoraði þá glæsilega þriggja stiga körfu tíu sekúndum fyrir leikslok. ÍS hafði yfir 29-38 í hálfleik en KR vann þriðja leikhlutann 18-8 og komst yfir fyrir lok hans 47-46. KR var síðan komið sex stigum yfir, 56-50 en Stúdínur komu sér aftur inn í leikinn og tryggðu sér framlengingu þar sem þær höfðu síðan betur annan leikinn í röð. Atkvæðamestar hjá KR: Helga Þorvaldsdóttir 15 stig, 7 fráköst Krstín Björk Jónsdóttir 14 stig Carrie Cofffman 11 stig, 12 fráköst Guðbjörg Norðfjörð 10 stig, 5 fráköst, 4 stolnir á 20 mín. Gréta María Grétarsdóttir 9 stig Hildur Sigurðardóttir 8 stig, 11 fráköst, 4 stoðsendingar Linda Stefánsdóttir 8 stig, 4 fráköst, á 22 mín. Atkvæðamestar hjá ÍS: Meadow Overstreet 23 stig, 6 stoðsendingar Alda Leif Jónsdóttir 20 stig, 9 fráköst, 9 stolnir, 8 stoðsendingar, 4 varin skot Hafdís Helgadóttir 18 stig, 9 fráköst, 3 varin skot Jófríður Halldórsdóttir 7 stig, 5 fráköst (4 í sókn) Lovísa Guðmundsdóttir 5 stig, 7 fráköst, 4 stoðsendingar Það má finna tölfræði leiksins [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001402/14020501.htm[v-]hér[slod-] en einnig er hægt að finna fleiri fróðlegar tölur úr þessum fyrsta leik undir greinum hér á KKÍ-síðunni. Hægt er að nálgast þær tölfræðipælingar [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=77[v-]hér[slod-]. Auk þessa er samantekt á tölfræði fyrstu tveggja leikja einvígisins undir greinum hér á KKÍ-síðunni. Hægt er að nálgast þær upplýsingar [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=76[v-]hér[slod-].