7 apr. 2002KR vann þriðja leik lokaúrslita kvenna í kvöld og kom þar með í veg fyrir að Stúdinur lyftu Íslandsbikarnum en ÍS hafði unnið tvo fyrstu leikina. KR vann þriðja leikinn, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001402/14020601.htm [v-]51-54[slod-], á heimavelli ÍS í Kennaraháskólanum og er staðan því 2-1 fyrir ÍS en þrjá sigurleiki þarf til að vinna titilinn. KR leiddi leikinn allan tímann og hafði 11 stiga forustu í hálfleik, 23-34. Næsti leikur er á miðvikudaginn í Íþróttahúsi KR og hefst klukkan 20:00. Atkvæðamestar hjá ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 17 stig, 7 fráköst, 5 stoðsendingar, 5 varin Hafdís Helgadóttir 10 stig, 6 fráköst, 3 varin Lovísa Guðmundsdóttir 9 stig, 16 fráköst Meadow Overstreet 9 stig, hitti úr 2 af 15 skotum Atkvæðamestar hjá KR: Hildur Sigurðardóttir 13 stig, 11 fráköst, 3 stoðsendingar Helga Þorvaldsdóttir 11 stig, 7 fráköst, 6 stoðsendingar, 4 stolnir Kristín Björk Jónsdóttir 8 stig, 3 stolnir Guðbjörg Norðfjörð 8 stig, 6 fráksöt, 4 stoðsendingar