9 apr. 2002Þá liggur fyrir staður og stund á golfmóti körfuboltamanna árið 2002, en mótið verður haldið föstudaginn 14.júní kl. 14:00 á Strandarvelli hjá Golfklúbbnum Hellu. Erindi eiga allir sem einhvern tíma hafa komið nálægt körfubolta sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn eða á einhvern hátt og eru að fikta við golfið. Þetta er í fimmta sinn sem mótið fer fram og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt, voru um 50 í fyrra. Reynt verður að ræsa sem flesta út í einu svo keppendur ljúki leik á svipuðum tíma og geti því átt góða stund í golfskála að leik loknum og rifjað upp gamlar stundir. Nánari upplýsingar hjá undirrituðum. Gott væri að fá netföng hjá sem flestum, sem þessi tilkynning á við. Með bestu körfubolta- og golfkveðju úr Stykkishólmi Ríkharður Hrafnkelsson gsm: 897-6279 netfang: rikhardur@sfs.is