11 apr. 2002Úrslitaviðureign Keflvíkinga og Njarðvíkinga um Íslandsmeistaratitil karla hefst í Keflavík í kvöld. Mikil spenna er í Reykjanesbæ og víðar fyrir þessari viðureign, en rimmur þessara liða í genum árin hafi verið mjög eftirminnilegar. Keflavík og Njarðvík hafa tvívegis áður mæst í lokaúrslitum. Það var árið 1991 þegar Njarðvík vann 3-2 og 1999 þegar Keflavík vann 3-2. Staðan í leikjum þessara lið í lokaúrslitum er því 5-5. Alls hafa þessi nágrannallið og erkifjendur í körfuboltanum mæst 134 sinnum á 23 árum. Meira efni og staðreyndir um Keflavík og Njarðvík er að finna á vefjum félaganna. Hér til vinstra á síðunni er hægt að komast á vefi félaganna. Leikurinn í kvöld hefst kl. 20 og verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Leikur 2 verður í Njarðvík á laugardaginn kl. 14 og verður hann einnig sýndur beint á Sýn eins og allir úrslitaleikirnir. Það er hægt að sjá [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=82[v-]hér[slod-] hverjir hafa skarað mest fram úr í tölfræðinni í þremur innbyrðisviðureignum Keflavíkur og Njarðvíkur í vetur.