23 maí 2002Dagana 24., 25. og 26. maí verða Ágúst Björgvinsson, unglingalandsliðsþjálfari og hinn 218 cm hái Pétur Guðmundsson, eini íslendingurinn sem hefur spilað í NBA-deildinni, aftur á ferðinni með körfuboltaskóla á landsbyggðinni. Að þessu sinni heimsækja þeir eftirfarandi staði: Á Tálknafirði, föstudaginn 24. maí kl. 16:00-18:00. 10-15 ára. Krakkar geta skráð sig í íþróttahúsinu. Á Ísafirði, laugardaginn 25. maí. Kl. 10:30-12:00, 8-11 ára. Kl. 13:00-16:00, 12-16 ára. Krakkar geta skráð sig fyrirfram hjá Guðjóni Þorsteinssyni. Í Stykkishólmi, sunnudaginn 26 maí, kl. 14:00-16:00. 10-15 ára. Krakkar geta skráð sig fyrirfram í íþróttahúsinu. Lögð verður áhersla á helstu undirstöðuatriði körfuboltans s.s. sendingar, skot og knattrak. Farið verður yfir helstu atriði samspils og mikilvægi þess bæði í vörn og sókn. Verðlaun verða veitt fyrir ýmsar aldursskiptar þrautir og að lokum fá allir boli merkta skólanum.