21 ágú. 2002Ísland mætir Finnlandi í fyrsta leik Polar cup mótsins í Osló á föstudag. Finnar hafa ávalt reynst Íslendingum erfiður ljár í þúfu og aðeins tveir sigrar hafa unnist gegn þeim í 26 landsleikjum. Það er því ljóst að róðurinn verður þungur hjá íslenska liðinum á föstudag. Ísland sigraði Finnland í fyrsta skipti í vináttulandsleik í Keflavík árið 1981 97-95 og síðan vannst sigur á Finnum á Polar cup í Århus 1998 68-65. Síðustu þrír leikir gegn Finnum töpuðust allir, 70-75 á Polar cup í Keflavík árið 2000 og í fyrra urðu úrslitin 73-84 á Ásvöllum og 66-97 í Helsinki í undankeppni EM. Finnar mættu Þjóðverjum í vináttulandsleik í sumar og töpuðu 70-84. Þá léku þeir tvo leiki í Eystrasalts-mótinu, töpuðu fyrur Lettum 87-120, en unnu Eista 96-88.