25 nóv. 2020Nýjustu fréttir úr „sóttvarnar-bubblunni“ í Bratislava í Slóvakíu hjá íslenska karlalandsliðunu eru þær að í morgun bárust því miður fréttir um að Haukur Helgi Briem Pálsson, leikmaður MoraBanc Andorra á Spáni, hefði greinst aftur jákvæður í seinni skimun sinni sem nauðsynlegt var að taka fyrir brottför hans til íslenska hópsins. Ferðalag hans var á dagskránni seinni partinn í dag.

Það þýðir einfaldega að hann missir af leikjunum tveim í þessum landsliðsglugga þar sem ekki er tími og rúm fyrir frekari skimanir og ferðalög samkvæmt reglum FIBA. Haukur Helgi hafði greinst neikvæður og með mótefni í blóðprufu, en því miður eru þetta nýjustu fréttirnar eins og áður segir í morgun, úr prufu sem tekin var í gær. Vonir stóðu til að hún yrði aftur neikvæð.

Haukur Helgi, sem leikið hefur 68 landsleiki fyrir Ísland, hefur verið að spila vel með Andorra í efstu deild á Spáni og var hópurinn spenntur að fá hann til liðs við sig. Íslenska liðið er áfram staðráðið í að sækja tvo sigra í leikjunum tveim og eru 12 leikmenn klárir í slaginn úti. Allir sem þar eru, leikmenn og fararteymi, voru skimaðir í gær þriðjudag og komu allir neikvæðir í þeirri skimun. 

Ein breyting verður því á liðsskipan Íslands fyrir leikina tvo, Ragnar Ágúst Nathanaelsson kemur inn í liðið fyrir Hauk Helga, en hann er hluti af 13 manna hópnum sem var skipaður fyrir leikina tvo.

Strákarnir og starfslið senda Hauki Helga sínar bestu kveðjur frá Bratislava og ætla að berjast fyrir hann og land og þjóð í leikjunum framundan og styrkja stöðu sína í riðlinum sem klárast svo í febrúar 2021 en þá verða það tvö efstu liðin fara áfram í næstu umferð keppninnar.