27 sep. 2022Þór Þorlákshöfn hefur í dag leik í átta-liða úrslitum forkeppni FIBA EuroCup sem fram fer í riðli í Mitrovica í Kosovó. Fyrsti leikur þeirra verður gegn AEK Larnaca frá Kýpur og hefst hann kl. 15:00 að íslenskum tíma. Sigurvegari leiksins mætir svo Antwerp Giants í undanúrslitunum en tapliðið verður úr leik. Það lið sem sigrar riðilinn síðan fer í sjálfa riðlakeppnina svo í vetur. 

Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði og beinu streymi á heimsíðu keppninnar hérna: fiba.basketball/europecup/22-23