4 okt. 2023

Dregið verður í 32 liða úrslit VÍS bikars karla og kvenna í dag. Að þessu sinni eru 25 lið skráð hjá körlunum og 17 hjá konunum. Það verða því leiknar 9 umferðir í 32 liða úrslitum VÍS bikars karla og ein umferð kvennamegin.

VÍS BIKARKEPPNI KARLA
(25 lið skráð)
Dregið verður í 9 viðureignir í 32 liða úrslitum. Eftirfarandi lið eru skráð til leiks.
Álftanes, Ármann, Breiðablik, Fjölnir, Grindavík, Hamar, Haukar, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KR, KR b, KV, Njarðvík, Selfoss, Skallagrímur, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Vestri, Þór Ak., Þór Þ., Þróttur V.

VÍS BIKARKEPPNI KVENNA
(17 lið skráð)
Dregið verður í eina viðureign í 32 liða úrslitum. Eftirfarandi lið eru skráð til leiks.
Ármann, Aþena, Breiðablik, Fjölnir, Grindavík, Hamar/Þór, Haukar, ÍR, Keflavík, Keflavík b, KR, Njarðvík, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Þór Ak.