17 okt. 2023Rúnar Birgir Gíslason verður á morgun í verkefni fyrir FIBA en þá verður hann við störf sem eftirlitsmaður á leik Bakken Bears og Manisa BBSK frá Tyrklandi. Um er að ræða leik í riðlakeppni FIBA Europe Cup karla. Leikurinn fer fram á heimavelli Bakken í Risskov í Danmörku og hefst kl. 18:30 á morgun miðvikudag.

Þetta eru fyrstu leikir liðanna í riðlakeppninni en með þeim eru lið Norrköpin Dolphins frá Svíþjóð og FC Porto frá Portúgal.

Hægt er að horfa á leikinn og aðra leiki í FIBA Europe Cup á heimasíðu keppninnar:

www.fiba.basketball/europecup/23-24/