8 jan. 2024Þann 20. janúar 2024 stendur KKÍ fyrir dómaranámskeiði í Blue höllinni í Keflavík. Leiðbeinandi verður Birgir Örn Hjörvarsson.
 
SKRÁNING HÉR

Námskeiðið hefst kl. 9:00 og stendur fram til kl. 17:00. Allir þátttakendur ljúka námskeiði sem dómarar og geta, hafi viðkomandi áhuga á því, farið á niðurröðun dómaranefndar. Boðið verður upp á hádegismat.

Þátttakendur þurfa að mæta með tölvu eða spjaldtölvu á námskeiðið.

Efni námskeiðsins snýr að grunni í dómgæslu, s.s. leikreglum og staðsetningu á leikvelli. Allir þátttakendur fá flautu.

Ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi námskeiðið, sendu okkur þá póst á kki@kki.is.