10 jan. 2024

Jón Bender, eftirlitsmaður FIBA, verður með verkefni í kvöld í EuroCup Women þegar hann verður á leik Lointek Gernika Bizkaia frá Spáni gegn London Lions Group Limited. Leikurinn fer fram í  Gernika-Lumo, á heimavelli Lointek.

Þetta er fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitunum en liðið sem stendur betur að vígi eftir leiki heima og að heiman fer áfram í 8-liða úrslitin.

Leikurinn hefst kl. 20:00 að íslenskum tíma og verður í beinu streymi á heimasíðu keppninnar. Dómari leiksins kemur frá Póllandi og meðdómararnir frá Frakklandi.

Heimasíða keppninnar og streymi:
www.fiba.basketball/eurocupwomen/23-24/game/1101/Lointek-Gernika-Bizkaia-London-Lions

#korfubolti