18 jan. 2024

Davíð Tómas Tómasson, FIBA dómari, er með leik fyrir FIBA í 16-liða úrslitum EuroCup Women sem fram fer í kvöld í London. Um er að ræða seinni leik London London Lions Group Limited gegn Lointek Gernika Bizkaia frá Spáni.

Jón Bender var eftirlitsmaður á fyrri leik liðana á Spáni á heimavelli Lointek fyrir rúmri viku. Þar hafði Lions betur 69:76 og hafa því sjö stiga forskot fyrir leikinn í kvöld. Liðið sem stendur betur að vígi eftir leiki heima og að heiman fer áfram í 8-liða úrslitin. 

Eftirlitsmaður leiksins er frá Belgíu og aðaldómari leiksins er frá Frakklandi, en Davíð er fyrsti meðdómari og sá síðari er frá Rúmeníu. 

KKÍ óskar Davíð Tómasi góðs gengis í verkefni kvöldsins. Hægt verður að venju að horfa á leikinn í beinu streymi á heimasíðu keppninnar sem hefst kl. 19:00 að íslenskum tíma:

www.fiba.basketball/eurocupwomen/23-24/game/1801/London-Lions-Lointek-Gernika-Bizkaia

#korfubolti