25 jan. 2024

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 15/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Pétur Geir Hilmarsson, leikmaður Breiðabliks, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Aftureldingar gegn Breiðablik, sem fram fór þann 19 nóvember 2023.

Agamál 20-2023-2024

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Arnór Daði Jónsson, þjálfari Keflavíkur, sæta tveggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur gegn Haukum í 9. flokki stúlkna , sem fram fór þann 10 janúar 2024.

Agamál 21/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Magnús Már Traustason, leikmaður Þróttar Vogum, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍA gegn Þrótti Vogum, sem fram fór þann 18 janúar 2024.