25 jan. 2024Seinka þurfti tveimur leikjum í Subway deild karla í kvöld. Annars vegar er það leikur Hamars og Hauka sem hefst kl. 19:45 og hins vegar leikur Þórs Þ. og Hattar sem hefst kl. 20:00. Seinkanir þessar koma til vegna mikilla umferðartafa á höfuðborgarsvæðinu seinni part dagsins, sem tafði bæði lið og dómara.