26 jan. 2024Samkvæmt reglugerð um félagskipti er nú opið fyrir félgaskipti allra leikmanna, það er bæði fyrir yngri flokka leikmenn og leikmenn eldri en 20 ára og verður félagaskiptaglugginn opinn út mánuðinn eða til miðnættis miðvikudaginn 31. janúar. Eftir það lokar fyrir ÖLL félagskipti út tímabilið.

· Það þýðir að engir leikmenn, íslenskir né erlendir, á öllum aldri, geta fengið félagaskipti eftir þann tíma.
· Það sama gildir um nýja/breytingar á venslasamningum þar sem þeir lúta reglum um félagaskipti. 
· Þá þurfa leikmenn eldri en 18 ára innan félaga einnig að vera komnir á leikmannalista félags í GameDay (roster) til að geta leikið eftir lokun gluggans í viðeigandi mfl.
· Leikmenn undir 18 ára aldri (yngri flokka leikmenn) má bæta við út tímabilið á leikmannalista innan félaga.

Umsóknir í vinnslu
Undanþága er þó sú að þau leyfi/beiðnir erlendra leikmanna sem borist hafa innan tímarammans til KKÍ og verða í vinnslu fyrir lokun gluggans eru afgreidd áfram, t.d. þegar beðið er eftir leikheimild (LOC) erlendis frá eða afgreiðslu UTL/VMST í þeim tilfellum sem þess þarf af því gefnu að öll gögn og greiðslur hafa verið afgreiddar.

Skila má gögnum alveg fram til lokunar gluggans á miðnætti þann 31. janúar en athygli skal vakin á því að leikmenn sem skila inn venjulegum félagaskiptum eftir kl. 16:00 á miðvikudeginum þann 31. janúar, hljóta fyrst leikheimild á fimmtudaginn 1. febrúar kl. 09:00 eftir að þau eru afgreidd.

Innlend félagsskipti
Skila þarf félagaskiptablöðum útfylltum með undirskrift leikmanns og forsvarsmanni þess félags sem gengið er úr á skrifstofu KKÍ eða sem viðhengi í tölvupósti. Það er á ábyrgð leikmanns/félags að fá undirskrift fyrra félags og þarf hún að vera á félagaskiptablaðinu. Greiða þarf fyrir með millifærslu og senda kvittun rafrænt á kki@kki.is.

Leikheimildir erlendra leikmanna/Óskir um Letter of Clearance (LOC)
Skila þarf inn öllum gögnum/klára aðgerðir sem KKÍ fer fram á auk þess að beiðni um LOC, sé þess er þörf, skal vera kominn í gang. LOC frá sambandi í öðru landi má þó berast eftir 31. janúar og hlýtur leikmaður þá leikheimild frá og með þeim degi þegar það berst að því undanskyldu að öll önnur gögn/greiðslur sem krafist er hafa borist skrifstofu KKÍ og hægt sé þar með að gefa út formlega leikheimild í kjölfarið.

Önnur gögn sem þarf eru afrit af vegabréfi leikmanns og upplýsingar um fyrra lið/land þar sem hann lék áður og upplýsingar um umboðsmann leikmanns sé hann til staðar og þá þarf hann ef um ræðir að vera FIBA Agent vottaður. Með þessu er hægt að sækja um LOC til FIBA. Þá þarf staðfestingu á tryggingu leikmannsins einnig og senda hana inn til skrifstofu KKÍ, greiða leikheimildargjald og skrá viðkomandi í GameDay.