29 jan. 2024Í dag fögnum við 63 ára afmæli Körfuknattleiksambands Íslands, en sambandið var formlega stofnað sunnudaginn 29. janúar 1961. Körfubolti hafði verið stundaður hér á landi um nokkurt skeið áður en kom að stofnun KKÍ, en eftir dugnað stórhuga baráttumanna tókst að setja KKÍ á stofn. Þeim eigum við mikið að þakka. Það gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig þar sem nokkur andstaða var við fjölgun sérsambanda á þessum tíma.

Í tilefni af þessu hafa dugmiklir sjálfboðaliðar tekið sig til og skannað inn ársskýrslur KKÍ, sem nú er að finna á heimasíðunni undir Um KKÍ > Körfuknattleiksþing.