
3 feb. 2026
VÍS bikarvikan hefst í Smáranum í kvöld með tveimur leikjum. Um er að ræða undanúrslit í meistaraflokki karla í kvöld, þriðjudaginn 3. febrúar og undanúrslit kvenna annaðkvöld, miðvikudaginn 4. febrúar. Úrslitaleikir meistaraflokkana verða svo á laugardaginn 7. febrúar. Á fimmtudeginum, föstudeginum og á sunnudeginum eru bikarúrslit yngri flokka.
Hér fyrir neðan má sjá dagskrá bikarvikunnar 2026:
Þriðjudagur 3. febrúar - undanúrslit karla
Keflavík - Stjarnan - kl. 17:15
Tindastóll - KR - kl. 20:00
Miðvikudagur 4. febrúar - undanúrslit kvenna
Keflavík - Hamar/Þór - kl. 17:15
Tindastóll - Grindavík - kl. 20:00
Fimmtudagur 5. febrúar - úrslit yngri flokka
KR - Stjarnan - 10. flokkur stúlkna - kl. 17:30
Stjarnan/KFG - Selfoss - 12. flokkur karla - kl. 20:00
Föstudagur 6. febrúar - úrslit yngri flokka
Stjarnan - Valur - 9. flokkur stúlkna - kl. 17:30
Stjarnan - Valur- 10. flokkur drengja - kl. 20:00
Laugardagur 7. febrúar - úrslit meistaraflokka
Úrslitaleikur meistaraflokks karla - kl. 15:00
Úrslitaleikur meistaraflokks kvenna - kl. 18:15
Sunnudagur 8. febrúar - úrslit yngri flokka
ÍA - Fjölnir - 9. flokkur drengja - kl. 12:00
Njarðvík - Valur - 12. flokkur kvenna - kl. 14:15
Fjölnir/Vængir Júpiters - KR/KV - 11. flokkur drengja - kl. 16:45
Fyrir ykkur sem ætla að mæta í Smárann er vert að taka það fram að inngangurinn verður inn í Fífuna.

Góða skemmtun!


