1 mar. 2026Íslenska liðið ferðaðist til Litháen í gærmorgun eftir sigurinn sögufræga á föstudagskvöldið. Framundan er annar leikur gegn Litháum sem spilaður verður í Klaipeda á mánudaginn kl 16:30. 

Tvær breytingar hafa orðið á íslenska hópnum. Haukur Helgi Pálsson ferðaðist með hópnum til Litháen en mun ekki taka þátt í leiknum vegna meiðsla, og þá varð Kári Jónsson eftir heima þar sem hann á von á sínu fyrsta barni á næstu dögum. 

Inn í hópinn í þeirra stað koma þeir Sigurður Pétursson og Ragnar Nathanaelsson.