1 mar. 2026Í kvöld verður Rúnar Birgir Gíslason tæknifulltrúi FIBA á leik Finnlands og Belgíu í Espoo í Finnlandi í undakeppni HM karla.

Líkt og Ísland og Litháen þá mætast Finnar og Belgar tvisvar í þessum glugga og fór fyrri leikurinn fram í Belgíu á föstudag og voru það Finnar sem sigruðu 71-66 eftir að Belgar höfðu leitt stærsta hlutann. Liðin leika í G riðli ásamt Frökkum og Ungverjum og er staðan þannig núna að Ungverjar, Frakkar og Finnar hafa unnið 2 leiki hvert en Belgar eru án sigurs.

Mikill áhugi er á leiknum í Finnlandi og var uppselt á hann í byrjun desember, 6500 manns.