11 mar. 2026Bjarki Þór Davíðsson dæmir í dag leik Noregs og Austurríkis í forkeppni EuroBasket 2027 kvenna.
Leikurinn fer fram í Bergen í Noregi og fyrir leikinn er lið Austurríkis ósigrað í riðli D en Noregur hefur ekki unnið leik.
Ewa Matuszewska frá Póllandi og Indre Balnionyte-Geceviciene fra Litháen dæma með honum og tæknifulltrúi FIBA er Giovanni Gerometta frá Ítalíu.


