
17 mar. 2026Pekka Salminen og þjálfarateymi hans hafa gert tvær breytingar á liðinu fyrir leikinn gegn Portúgal í kvöld. Inn í liðið koma þær Ásta Júlía Grímsdóttir og Eva Wium Elíasdóttir, en sú fyrrnefnda gat ekki tekið þátt í leiknum í Serbíu á miðvikudag vegna meiðsla. Úr hópnum í þeirra stað fara þær Kolbrún María Ármannsdóttir og Þóranna Kika Hodge-Carr vegna meiðsla.
Leikurinn í kvöld er í Ólafssal og hefst kl 19:30. Það er frítt inn á leikinn í boði Lengjunnar á meðan húsrúm leyfir. Opnað verður inn í salinn klukkutíma fyrir leik og við hvetjum fólk til að mæta tímanlega til að ná sér í sæti.
Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík
Ásta Júlía Grímsdóttir – Valur
Danielle Rodriguez – Njarðvík
Eva Wium Elíasdóttir - Stjarnan
Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir - KR
Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR
Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík
Sigrún Björk Ólafsdóttir - Haukar
Tinna Guðrún Alexandersdóttir - Haukar
Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík
Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar


