
18 mar. 2026
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 45/2025-2026
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Benedikt Guðmundsson, leikmaður Stjörnunnar, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar b gegn Hetti í 12 flokk karla, sem fram fór þann 15 mars 2026.
Agamál 149/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Bjarmi Skarphéðinsson þjálfari Selfoss, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.
Agamál 150/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Ísak Örn Baldursson leikmaður Snæfells, sæta 20 þúsund króna sekt vegna 4 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.


