20 mar. 2026

Þremur leikjum hefur verið frestað sem voru á dagskrá í dag föstudaginn 20. mars. Þar sem vegir um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði, Dynjandisheiði, Þröskulda og Steingrímsfjarðarheiði eru lokaðir og óvissustig og líkur á að fleiri vegir lokist. Leikur Tindastóls og Álftanes í Bónus deild karla er kominn á dagskrá á morgun laugardaginn 21. mars kl.16:30 og leikur Selfoss - Þór Ak. fer einnig fram á morgun kl.19:30. Verið er að vinna í því að koma leik Vestra og KV aftur á dagskrá í 1. deild kvenna.