
4 apr. 2003Ungmennafélagið Afturelding og BÓNUS standa nú fyrir körfuknattleikskynningu fyrir 5.-10. bekkinga í Mosfellsbæ í samstarfi við Körfuknattleikssamband Íslands. Tilgangurinn er að kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að stofna körfuknattleiksdeild innan Aftureldingar á ný. Verkefnið byrjaði í mars þegar hinn 218 sm hái Pétur Guðmundsson, fyrrverandi NBA leikmaður, hemsótti 5.–8. bekkinga í Varmár- og Lágafellsskóla í leikfimitíma og kynnti fyrir þeim og sýndi ýmsar þrautir. Í framhaldi af því var krökkunum boðið að mæta á æfingar hjá honum fram í maí mánuð. Boðið er upp á æfingar í 4 flokkum og hefur æfingagjald verið fellt niður: Minnibolta (11 ára og yngri), 8 flokk drengja og stúlkna (7. og 8. bekkur) og 10. flokkur drengja (9. og 10. bekkur). Allir flokkar æfa tvisvar í viku og endar kynningin í maí með BÓNUS –MÓTINU, þar sem allir flokkar fá til sín lið í heimsókn. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að hafa samband við Íþróttamiðstöðina að Varmá. mt: Aðstandurendur verkefnisins þeir Pétur Guðmundsson, Jóhannes Jónsson í Bónus og Valdimar L. Friðriksson framkvæmdastjóri Aftureldingar.


