Upplýsingar fyrir mótshaldara

Upplýsingar fyrir mótshaldara

Hér fyrir neðan eru upplýsingar fyrir mósthaldara sem taka að sér MB10, MB11, 7. flokk og 8. flokk. 

KKÍ sér um að senda út póst og auglýsa skráningu ásamt helstu upplýsingum. Ef mótshaldarar óska eftir að KKÍ sendi upplýsingar um mótið, líkt og gistingu og verð og þess háttar þarf það að berast til KKÍ fyrir skráningargluggann. 

Í skráningunni þurfa félög að taka fram netfang tengiliðar og þjálfara en leikjadagskráin er svo send á þessi netföng.

Þegar skráningu er lokið tökum við saman alla skráða tengiliði+þjálfara og sendum ykkur. Þið sendið síðan út leikjadagskrá á þessa aðila.

Eitthvað fyrir mótið fáið þið til ykkar skjal með drögum að leikvöllum og tímasetningum en þið aðlagið það að ykkar húsi upp á velli og tímasetningar. 

Þegar skráningu lýkur þá sendum við ykkur þetta skjal uppfært með öllum skráðum liðum og þá er hægt að hefjast handa við að setja upp leikjadagskrá. Upplýsingar um hvernig er best að setja upp leikjadagskrá er að finna í skjali hér fyrir neðan - Leiðbeiningar fyrir mótshaldara


Frekari gögn:

1. Leiðbeiningar fyrir mótshaldara

2. Leikjadagskrá - drög að pósti

3. 


Frekari upplýsingar vegna 7. og 8. flokk

Það eru nokkur atriði sem við viljum biðja ykkur um að hafa í huga varðandi umgjörð í Íslandsmóti hjá 7. og 8. flokki þetta tímabilið. Með því er ekki sagt að ykkur sé ekki treyst til að halda utan um verkefnið sem framundan er, heldur viljum við tryggja að allir séu að vinna eftir sömu viðmiðum – þannig tryggjum við sem best jákvæða upplifun allra sem að keppnishaldinu koma. Við viljum eftir fremsta megni tryggja keppendum ánægjulega upplifun af mótunum og því mikilvægt að gæta að eftirfarandi atriðum. Endilega hafið samband ef það er eitthvað.


STÆRÐ LEIKVALLA OG LÍNUR LEIKVALLAR 

A+ B riðlar og ef möguleiki þá C riðlar fari fram á stórum velli

  • Í umsóknarferli var gert ráð fyrir lágmarki 2 (stúlkur) og 3 (drengir) stórum völlum (28x15m)

Í neðri riðlum D+E er möguleiki að leikið er á minni leikvöllum

  • Í umsóknarferli var gert ráð fyrir lágmarki 2 minni völlum (22x14m) en það fer eftir fjölda skráðra liða í umferð.

Allar línur leikvallar skulu vera í sama lit. 

Veggir, tjöld eða önnur mótstaða er ekki gild ytri mörk leikvallar.

Gert er ráð fyrir því að leikvellir séu að minnsta kosti 14m breiðir. Í sumum tilfellum eru vellir málaðir á gólf í íþróttahúsum þrengri en 14m. Þegar svo ber við þarf að teipa breiðari velli. 

  

Allar línur leikvallar skulu vera í sama lit. Það er til dæmis ekki nægjanlegt að nota rauða línu sem endalínu, vegg sem endalínu hinu megin vallar, bláa hliðarlínu og gula hliðarlínu hinu megin. Það er ófrávíkjanlegt að allar línur leikvallar skulu vera í sömu litum. Leikvöllurinn er einfaldur, þar sem aðeins þarf að merkja: 

  • hliðarlínur 
  • endalínur 
  • teiglínur og vítalínu 
  • miðlínu 
  • þriggja stiga línu 

Ekki skiptir máli hver liturinn er á línunum, öðruvísi en að allar línur skulu vera í sama lit og greinilegar. Veggir, tjöld eða önnur mótstaða er ekki gild ytri mörk leikvallar. 

  

Ingi Þór Steinþórsson er með teip sem auðvelt er að ná af keppnisgólfi án þess að lakkið á gólfinu skemmist, ingi.steinthorsson@tesa.com, 8601885.

  

SÉRREGLUR

Í 7. og 8. flokki eru nokkrar sérréglur

  • Ekki er heimilt að leika svæðisvörn í 7. flokki, hvorki á varnar- né sóknarvelli. Verði lið uppvíst að því að spila ólöglega vörn skal stöðva leikinn og aðvara þjálfara brotlega liðsins. Við endurtekin brot skal dæma tæknivillu (C) á þjálfara brotlega liðsins.
  • 24 sek. skotklukka skal gangsett er sóknarlið kemur bolta yfir miðlínu.

DÓMGÆSLA 

Það er mikilvægt að gæta sérstaklega að dómgæslu í efri riðlum. Þar er meiri keppni og spilað af mun meiri krafti en í neðri riðlum. Þar þurfa að vera fullorðnir einstaklingar sem eru færir um að gæta þess að leikir fari vel fram og búa yfir reynslu og þekkingu. Að dómara sýni verkefninu virðingu því að þarna eru yngri leikmenn að taka þátt í Íslandsmóti og leggja mikið á sig til þess. Að dómarar sýni leiknum áhuga, mæti í réttum búnaði (ekki í inniskóm og í hettupeysu), þori að flauta og mikilvægt að geta leiðbeint leikmönnum. Að dómarar séu gengnir upp úr grunnskóla og að tveir dómarar séu á leikjum í A, B og C riðlum og helst í neðri riðlum einnig. Mikilvægt að dómarar hafi reynslu og þekkingu á leiknum, þora að nota flautuna og geta útskýrt fyrir leikmönnum og öðrum hvað dæmt er á. Í neðri deildum er hlutverk dómara oft meira að leiðbeina og útskýra. Það má gjarnan ítreka það við dómara að á þessum mótum á að dæma tæknivillur, óíþróttamannslegar villur og brottrekstrarvillur eins og í öðrum leikjum ef aðstæður krefja þess. Óásættanleg hegðun leikmanna og þjálfara skal taka á eins og leikreglur í körfubolta segja til um. Dómarar frá KKÍ dæma alla leiki í A-riðli í lokaumferðinni.

LEIKKLUKKA

Það er mikilvægt að leikklukka og stöðutafla sé sýnileg við hvern völl. Hægt er að nota spjaldtölvur, fartölvur eða annan sambærilegan búnað og skjá til að sýna tíma. Gæta skal þess að stöðva leikklukku síðustu mínútu hvors hálfleiks eftir skoraða körfu, villur, leikbrot og þegar bolti fer út af. Sum félög hafa notað fartölvur og tengt skjá við, fartölvan snýr þá að starfsfólki ritaraborðs en skjárinn út á leikvöll. Hægt er að nálgast skorklukkuforrit sem notað hefur verið á minniboltamótum hér http://kki.is/motamal/ymsar-upplysingar/skorklukku-forrit-fyrir-mot/. Aðalatriðið er að leiktími og staða leiks sé greinileg fyrir öllum þátttakendum leiks, hver sem lausnin er.

SKOTKLUKKA

Skotklukkur verða að vera til staðar í A og B riðlum og gott væri ef það er einnig hægt í C riðlum. Hægt er að nálgast 24 skotklukku hér: https://play.google.com/store/apps/details?id=com.o_taiji.digitimer&hl=en, https://play.google.com/store/apps/details?id=it.alecs.twentyfourseconds&hl=en eða þetta https://apps.apple.com/ai/app/simple-shot-clock/id1633010722 og þá væri hægt að nota þetta líkt og með leikklukkuna með spjaldtölvur, fartölvur og skjá til að sýna skotklukku.

Í þeim riðlum þar sem skotklukka er ekki þurfa dómarar leiksins að telja niður þegar boltinn fer yfir miðlínu hjá sóknarliði.  Það yrði meiri ánægja ef að hægt væri að hafa skotklukkur á sem flestum völlum.

Boltar

Leikið skal með boltastærð nr. 6 á stórar körfur


Frekari upplýsingar í tengslum við MB mót:

STÆRÐ LEIKVALLA OG LÍNUR LEIKVALLAR

Í A og B riðli er notast við „stóra velli“ (miða skal við að leikvöllur sé 18 metrar á lengd og 12 metrar á breidd eða stærri) en hægt er að nota minni velli fyrir neðri riðlana.

Gert er ráð fyrir því að leikvellir séu að minnsta kosti 12m breiðir. Í sumum tilfellum eru vellir málaðir á gólf í íþróttahúsum þrengri en 12m. Þegar svo ber við þarf að teipa breiðari velli.

Allar línur leikvallar skulu vera í sama lit. Það er til dæmis ekki nægjanlegt að nota rauða línu sem endalínu, vegg sem endalínu hinu megin vallar, bláa hliðarlínu og gula hliðarlínu hinu megin. Það er ófrávíkjanlegt að allar línur leikvallar skulu vera í sömu litum. Minniboltavöllur er einfaldur, þar sem aðeins þarf að merkja:

  • hliðarlínur
  • endalínur
  • teiglínur og vítalínu
  • miðlínu
  • þriggja stiga línu

Allar þessar línur eru beinar og má sjá í viðhengi. Ekki skiptir máli hver liturinn er á línunum, öðruvísi en að allar línur skulu vera í sama lit og greinilegar. Veggir, tjöld eða önnur mótstaða er ekki gild ytri mörk leikvallar.

Ingi Þór Steinþórsson er með teip sem auðvelt er að ná af keppnisgólfi án þess að lakkið á gólfinu skemmist, ingi.steinthorsson@tesa.com, 8601885.

  

SÉRREGLUR

Í minnibolta eru nokkrar sérreglur.

  • Munur fer aldrei yfir 20 stig - ef annað liðið nær 20 stiga mun skal hætta að telja. Ekki skal skrá úrslit með meiri mun en 20 stiga sigri, og ekki skal sýna meira en 20 stiga mun á stigatöflu. Nái lið 20 stiga mun er þá samstundis hætt að telja, en leikurinn heldur samt áfram og leikið til enda.
  • Vítalína er í 4m fjarlægð frá körfu.
  • Körfur sem skoraðar eru fyrir utan nýja þriggja stiga línu gilda sem 3 stig. Þessi lína liggur skáhallt frá horni vítalínu og teiglínu niður að horni endalínu og hliðarlínu (sjá mynd).
  • Boltahindranir eru ekki leyfðar - dæma skal sóknarvillu á boltahindranir, óháð því hvort boltahindrun er viljandi eða óviljandi sett. Hindranir frá bolta eru hins vegar heimilaðar.
  • Nú má spila vörn allan völlinn, en dómarar eru hvattir til að taka hart á brotum varnarmanna sem veita þeim hagræði umfram sóknina, sérstaklega ef leikir eru ójafnir. Varnarlið má ekki tvöfalda eða gildra í minnibolta.

DÓMGÆSLA

Það er mikilvægt að gæta sérstaklega að dómgæslu í efri riðlum. Þar er meiri keppni og spilað af mun meiri krafti en í neðri riðlum. Að dómara sýni verkefninu virðingu því að þarna eru yngri leikmenn að taka þátt í Íslandsmóti og leggja mikið á sig til þess. Að dómarar sýni leiknum áhuga, mæti í réttum búnaði (ekki í inniskóm og í hettupeysu), þori að flauta og mikilvægt að geta leiðbeint leikmönnum. Að dómarar séu gengnir upp úr grunnskóla og að tveir dómarar séu á leikjum í A, B og C riðlum og helst í neðri riðlum einnig. Mikilvægt að dómarar hafi reynslu og þekkingu á leiknum, þora að nota flautuna og geta útskýrt fyrir leikmönnum og öðrum hvað dæmt er á. Í neðri deildum er hlutverk dómara oft meira að leiðbeina og útskýra. Það má gjarnan ítreka það við dómara að á þessum mótum á að dæma tæknivillur, óíþróttamannslegar villur og brottrekstrarvillur eins og í öðrum leikjum ef aðstæður krefja þess. Óásættanleg hegðun leikmanna og þjálfara skal taka á eins og leikreglur í körfubolta segja til um. Dómarar frá KKÍ dæma alla leiki í A-riðli í lokaumferðinni.

LEIKKLUKKA

Það er mikilvægt að leikklukka og stöðutafla sé sýnileg við hvern völl. Hægt er að nota spjaldtölvur, fartölvur eða annan sambærilegan búnað og skjá til að sýna tíma. Gæta skal þess að stöðva leikklukku síðustu mínútu hvors hálfleiks eftir skoraða körfu, villur, leikbrot og þegar bolti fer út af. Sum félög hafa notað fartölvur og tengt skjá við, fartölvan snýr þá að starfsfólki ritaraborðs en skjárinn út á leikvöll. Hægt er að nálgast skorklukkuforrit sem notað hefur verið á minniboltamótum hér http://kki.is/motamal/ymsar-upplysingar/skorklukku-forrit-fyrir-mot/. Aðalatriðið er að leiktími og staða leiks sé greinileg fyrir öllum þátttakendum leiks, hver sem lausnin er. Engin skotklukka er í minnibolta.

MINNIBOLTASKÝRSLA

Notuð er sérstök leikskýrsla í minnibolta, en hana má nálgast hér http://kki.is/library/Skrar/minnibolta_leikskyrsla.pdf. Einungis er heimilt að vera með 7 leikmenn í liði, en mæti lið með 8 eða fleiri leikmenn þá fá þau ekki að skrá fleiri leikmenn á skýrslu – þessi félög hefði þá átt að skrá fleiri lið til keppni. Við mælum með því að undirbúa leikskýrslur fyrir mótið, þar sem það sparar heilmikla vinnu á leikstað.

Boltar

Leikið skal með composite leðurbolta í öllum riðlum í Íslandsmóti Minnibolta. Boltinn þarf að vera sambærilegur Molten BG4500.



Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira