3 mar. 2004Helgi Bragason körfuboltadómari hefur ákveðið að hætta störfum sínum sem alþjóðlegur dómari á vegum FIBA og mun ekki sækja námskeið á Kanaríeyjum í sumar til að viðhalda réttindum sínum. Helgi tók prófið sem FIBA dómari í Osló á árinu 1992 og hefur því starfað sem slíkur í 12 ár. Á ferli sínum hefur hann dæmt marga leiki í Evrópu, bæði hjá félagsliðum og landsliðum. Helga eru þökkuð frábær störf á alþjóðavettvangi fyrir Íslands hönd. Helgi, sem hefur verið einn af okkar bestu dómurum, mun halda áfram að dæma hér á landi á næstu árum.