3 mar. 2004Eftirlitsnefnd KKÍ með framkvæmd reglna um Intersportdeildina í körfuknattleik hefur úrskurðað að Tindastóll geti ekki endað ofar í Intersportdeildinni en lið sem er með jafnmörg stig og þeir. Þrátt fyrir að innbyrðis viðureignir séu liðinu hagstæðar þá lendi þeir neðar í töfluröðinni. Það er því ljóst að Tindastóll getur ekki náð 4. sætinu af Njarðvík þrátt fyrir að liðið vinni leik liðanna á morgun og sé þar með með hagstæðara vinningshlutfall en jafn mörg stig í deildinni. Enn fremur á liðið það á hættu að falla niður í 6 sæti endi liðið með jafn mörg stig og Haukar í 5 - 6 sæti, þrátt fyrir að liðið hafi betur í innbyrðisviðureignum félaganna. Meðfylgjandi er grein sú sem eftirlitsnefndin úrskurðaði eftir. Geta áhugasamir séð alla [v+]http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=15[v-]reglugerðina[slod-]. 4.2. Fari félag fram úr launaþaki skv. greinum 2.4., 2.5., 2.6., 2.7., 2.8 og 2.10. skulu eftirfarandi viðurlög eiga við: 4.2.1. Fyrir fyrsta brot skal félagið greiða allt að kr. 100.000,- í sekt til KKÍ og allt að fjögur stig skulu dregin af liðinu. Endi brotlega liðið með jafn mörg stig og annað skal það brotlega teljast neðar í töflunni og innbyrðis viðureignir ekki skipta máli. 4.2.2. Við gróft eða ítrekað brot á sama keppnistímabili skal heimilt að draga stig af félaginu, vísa því úr deildinni og jafnframt að sekta félagið um allt að kr. 500.000,- Sé félagi vísað úr deildinni skal það taka sæti í 1. deild í stað næst neðsta liðs úrvalsdeildar.
Tindastóll í vandræðum