
6 jún. 2015Í dag kl. 16.00 leikur íslenska karlalandsliðið til úrslita á Smáþjóðaleikunum 2015 í Laugardalshöllinni. Frítt er á leikinn og hvetjum við alla áhugsama körfuknattleiksaððdáendur til að mæta og styðja við bakið á liðinu. Helmingur íslenska hópsins hjá karlalandsliðinu á Smáþjóðaleikunum í ár var einnig með fyrir tveimur árum þegar íslenska liðið endaði í þriðja sæti á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg. Það er því örugglega hugur í íslenska hópnum að gera betur í Laugardalshöllinni þar sem leikirnir fara fram enda liðið nú á heimavelli í aðeins annað skiptið í söguSmáþjóðaleikanna. Íslenska landsliðið náði bronsinu á Smáþjóðaleikunum 2013 eftir tvo sigra og tvö töp í fjórum leikjum. Íslenska liðið vann San Marínó og Andorra en tapaði fyrir Lúxemborg og Kýpur. Íslenska liðið fór reyndar bara með tíu leikmenn á leikana 2013 þar sem að tveir leikmenn íslenska liðsins þurftu að draga sig út úr hópnum á síðustu stundu vegna meiðsla en það voru þeir Hörður Axel Vilhjálmsson og Finnur Atli Magnússon. Hörður Axel missir nú af öðrum Smáþjóðaleikunum í röð vegna meiðsla. Það eru því sextíu prósent af þeim leikmönnum sem spiluðu síðasta leik íslenska karlalandsliðsins á Smáþjóðaleikum sem verða með í fyrsta leiknum í Höllinni sem verður á móti Andorra á miðvikudaginn 3. júní. Fimm leikmannanna sem voru með fyrir í Lúxemborg fyrir tveimur árum voru þá að keppa á sínum fyrstu Smáþjóðaleikum en það voru þeir Axel Kárason, Ægir Þór Steinarsson, Elvar Már Friðriksson, Martin Hermannsson og Ragnar Ágúst Nathanaelsson. Brynjar Þór Björnsson var hinsvegar að keppa á sínum öðrum leikum en hann hafði verið með þegar gullið vannst í Mónakó sex árum fyrr þá aðeins 19 ára gamall. Ægir Þór Steinarsson og Brynjar Þór Björnsson voru stigahæstu leikmenn íslenska liðsins á leikunum 2013, Ægir Þór með 14,3 stig í leik en Brynjar Þór með 12,8 stig í leik. Þeir skoruðu líka flestar þriggja stiga körur, Ægir skoraði ellefu þrista og Brynjar tíu. Stig leikmanna á Smáþjóðaleikunum fyrir tveimur árum: Ægir Þór Steinarsson · 57 Brynjar Þór Björnsson · 51 Jón Ólafur Jónsson · 35 Jóhann Árni Ólafsson · 35 Magnús Þór Gunnarsson · 28 Axel Kárason · 24 Ragnar Nathanaelsson · 21 Justin Shouse · 15 Elvar Már Friðriksson · 7 Martin Hermannsson · 6


