6 jún. 2015Í dag laugardag er stór dagur hjá okkar liðum en bæði lið leika um gullið á Smáþjóðaleikunum 2015. KKÍ hvetur alla körfuknattleiksaðdáendur á landinu til að mæta og styðja við bakið á okkar keppendum. Frítt er inn á báða leikina á morgun. Kl. 13.30 mætast Ísland og Lúxemborg í úrslitaleik kvenna. Strax að honum loknum mætast Ísland og Svartfjallaland í úrslitaleik karla. Von er á spennandi og skemmtilegum leikjum og verða báðir leikir í beinni á RÚV. Að leik loknum verður síðan verðlaunaafhending fyrir keppni í körfuknattleik á leikunum.