10 feb. 2026

SÝN Sport og Körfuknattleikssamband Íslands kynna í dag nýtt og metnaðarfullt samstarf sem mun marka tímamót í aðgengi að íslenskum körfubolta. Sjónvarpsstöðin KKÍ TV mun hefja útsendingar frá íslenskum körfubolta frá öllum leikjum í 1. deild karla og kvenna, ásamt því að sýnt verður frá 2. og 3. deild eftir því sem kostur er en þó með aðaláherslu á úrslitakeppnina. Einnig verður sýnt frá leikjum yngri flokka í úrslitakeppninni eftir því sem aðstæður leyfa.

Þetta er stórt skref fyrir körfubolta á Íslandi þar sem aldrei áður hafa jafn margar beinar útsendingar verið í boði fyrir áhugafólk um körfubolta, iðkendur og aðstaðdendur þeirra. Á næstu misserum verður svo unnið að því að fjölga útsendingum enn frekar og skapa nýja möguleika fyrir félög, leikmenn og aðstandendur. Markmiðið er að byggja upp öfluga, nútímalega og aðgengilega sjónvarpsstöð sem þjónar allri körfuboltahreyfingunni á Íslandi.

Útsendingar hefjast dagana 11.-12. febrúar þegar allir leikir í 1. deild verða sýndir í beinni á KKÍ TV. Í febrúar verða allir leikir aðgengilegir í opinni dagskrá en frá og með 1. mars verður KKÍ TV rekið sem áskriftaþjónusta.  Verðið á KKÍ TV verður 1.990 kr. á mánuði. KKÍ TV verður aðgengilegt í gegnum myndlykla Sýnar og SÝN sjónvarps appið.

Stóraukin þjónusta og ný tækni

Samstarf SÝN Sport og KKÍ felur í sér stóraukið umfang útsendinga ásamt því að innleidd verður ný myndavélatækni sem mun gjörbreyta aðgengi að leikjum og greiningum. Körfuboltafélög, þjálfarar, dómarar og leikmenn munu fá betri innsýn með auknu aðgengi að myndefni, tölfræði og gögnum um leiki og leikmenn. Þá mun myndbandadómgæsla einnig taka miklum framförum og verða nýtt í mun fleiri leikjum en áður, bæði í meistaraflokkum og yngri flokkum.