
26 apr. 2026
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 55/2025-2026
Í ljósi háttsemi áhorfanda í leik Tindastóls og Stjörnunnar, sem fram fór 20. apríl 2026, þar sem áhorfandi kastaði flösku inn á leikvöllinn í átt að dómara leiksins og engin viðbrögð hafi verið af hálfu gæslunnar, skal Tindastóll sæta sekt að fjárhæð 50.000 kr., sbr. h-lið 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál.
Agamál 173/2025-2026
Með vísan til ákvæðis q. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur, sæta 50 þúsund króna sekt vegna 8 tæknivilla sem hann hefur hlotið á tímabilinu.


