13 maí 2026

Í þessari viku munu hátt í 150 forystumenn körfuboltans í Evrópu frá 48 þjóðum heimsækja Ísland, funda og ræða evrópskan og alþjóðlegan körfubolta.

Tilefnið er þing evrópska körfuknattleikssambandsins FIBA Europe, einnig er stjórnafundur FIBA Europe fyrir þingið og vinnufundur framkvæmdastjóra körfuknattleikssambanda Evrópu. Fundirnir fara fram 15.-16.maí.

Það er að sjálfsögðu stór viðburður og mikill heiður fyrir KKÍ, íslenskan körfubolta og íþróttir á Íslandi að þing FIBA Europe fari fram hér á landi.