
26 maí 2026
Haukar urðu Íslandsmeistarar í ungmennaflokki karla 21. maí síðastliðinn með sigri á Selfoss. Haukar unnu fyrsta leikinn í Vallaskóla og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram á Ásvöllum. Leikurinn fór 116-97 Haukum í vil. Þjálfari liðsins er Þorkell Jónsson.
Kristófer Breki Björgvinsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 31,3 stigum, 12,7 fráköst og 8,3 stoðsendingar.
Til hamingju Haukar!


