26 maí 2026

Njarðvík urðu Íslandsmeistarar í 12. flokki kvenna 21. maí síðastliðinn með sigri á Val. Njarðvík vann fyrsta leikinn á Hlíðarenda og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram í IceMar höllinni. Leikurinn fór 87-77 Njarðvík í vil. Þjálfarar liðsins eru Einar Árni Jóhannsson og Bruno Richotti. 

Hulda María Agnarsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 17,5 stigum, 9,5 fráköstum og 2,5 stoðsendingum. 

Til hamingju Njarðvík!