28 maí 2026

Breiðablik urðu Íslandsmeistarar í 9. flokki drengja 22. maí síðastliðinn með sigri á Fjölni. Breiðablik vann fyrsta leikinn í Smáranum og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram í Dalhúsum. Leikurinn fór 73-77 Breiðablik í vil. Þjálfarar liðsins eru Mikael Máni Hrafnsson og Ingimar Ólafsson. 

Rúnar Magni Rúnarsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 18 stigum, 3,3 fráköstum og 1 stoðsendingu. 

Til hamingju Breiðablik!