9 jún. 2026

Jorge Garbajosa, forseti körfuknattleikssambands Evrópu FIBA Europe, lét það verða sitt fyrsta verk að fara að leiði Ólafs Rafnssonar þegar hann var staddur á Íslandi á dögunum. Ólafur var jú forseti FIBA Europe 2010-2013 eins og körfuboltaunnendur þekkja og auk þess forseti ÍSÍ. 

„Ég lagði körfuboltaskóna á hilluna árið 2012 og fór þá strax að vinna fyrir spænska sambandið. Ég kynntist því Ólafi lítillega á þessu ári sem leið þar til hann féll frá, en ekki gafst tími til að mynda náin persónuleg tengsl við hann. Þegar við Kamil Novak, framkvæmdastjóri FIBA Europe, lentum í Keflavík nýlega þá sótti Hannes Sigurbjörn Jónsson okkur á flugvöllinn. Okkar fyrsta stopp á leiðinni frá flugvellinum var að fara að leiði Ólafs í Hafnarfirði og votta honum virðingu okkar. Hann var einn af fyrirrennurum mínum í starfi og afar mætur maður.“

Garbajosa var hér staddur vegna þings FIBA Europe sem haldið var á Íslandi. „Ég er vægast sagt ánægður með þingið í Reykjavík og á svo margan hátt. Í fyrsta lagi er heiður að sækja einn varaforseta minna [Hannes Sigurbjörn Jónsson] heim með því að mæta á FIBA Europe þing í hans heimalandi. Varaforsetarnir þrír eru í miklu návígi við mig og eru þeir sem ég treysti mest á. Þeir ráðleggja mér í mikilvægum og viðkvæmum málum í hreyfingunni. Það er afar jákvætt að vera hér í heimalandi Hannesar,“ segir forsetinn og hann segir það vera eins og auka bónus að vera í áhugaverðu landi eins og Íslandi. 

„Allt þetta fólk sem er hingað komið til að starfa á þinginu gerir það vegna þess að það elskar körfubolta. Að fá tækifæri til að gera það í jafn fallegu landi og Íslandi er sérstakt. Þegar á hólminn var komið þá gekk þetta auðveldlega fyrir sig. Þetta fallega hótel [Hótel Reykjavík Grand] hefur marga kosti þegar kemur að þinghaldi eins og okkar. Við höfum haldið alls kyns fundi fyrir utan blaðamannafund og þetta gekk allt saman vel.“

Garbajosa er ánægður með þingið á Íslandi og afraksturinn en hann nefnir að helstu tillögur hafi verið samþykktar. Mönnum beri gæfa til að takast á málefnalega í rökræðum og sætti sig við niðurstöðu meirihlutans þegar uppi er staðið. „Viðhorfið er einstakt í hreyfingunni og maður finnur það á þingi eins og þessu.“ 

Þægilegt að umgangast Íslendinga

Garbajosa þykir gott að vinna með Íslendingum og hefur nú kynnst þeim nokkrum. Fyrst Ólafi Rafnssyni en síðar fleirum eftir að hann varð sjálfur forseti FIBA Europe. 

„Ég hef ekkert nema gott um samstarf okkar Hannesar hjá FIBA Europe að segja og ég ber mikla virðingu fyrir honum. Ég kann auk þess einfaldlega vel við hann þegar við eigum í samskiptum sem snúast ekki um körfuboltann. Ég hef einnig kynnst Guðbjörgu Norðfjörð, fyrrverandi formanni KKÍ, mjög vel enda hefur hún verið í nefndum á vegum FIBA Europe. Ég og núverandi formaður KKÍ [Kristinn Albertsson] erum að byggja upp okkar samskipti en mér þykir þægilegt að umgangast Íslendinga,“ segir Garbajosa og vonast til þess að koma aftur til Íslands síðar og dvelja lengur. 

„Ég kom hingað einu sinni áður vegna stjórnarfundar árið 2017. Eiginkona mín og 6 ára gömul dóttir okkar voru afar spenntar þegar þær heyrðu að þingið væri haldið á Íslandi en þær voru ekki eins hressar þegar í ljós kom að þær gátu ekki komið með. Málið er að þetta er líklega annasamasta helgi ársins hjá mér og ég gæti frekar hugsað mér að koma hingað með þeim einhvern tíma síðar þegar tími gefst til. Þá væri kannski hægt að dvelja hér í viku eða svo og kynnast landinu betur.“

Spilaði með Pavel í Malaga

Garbajosa er spænskur og var mjög öflugur leikmaður á sínum atvinnumannaferli áður en meiðsli settu strik í reikninginn. Hann varð heims- og Evrópumeistari með Spáni og fékk fjölda viðurkenninga fyrir frammistöðu sína með félagsliðum. Auk þess að leika með stórliðinu Real Madríd lék hann utan heimalandsins á Ítalíu, í Rússlandi og með Toronto Raptors í NBA-deildinni. Um tíma var hann samherji Pavels Ermolinskij hjá Unicaja í Malaga og tók það fram á blaðamannafundinum sem haldin var á Íslandi vegna þingsins. 

„Það er orðið mjög langt síðan við Pavel spiluðum saman. Þegar við hittumst á EM í Berlín árið 2015 þá spjölluðum við einmitt um hversu skrítið lífið getur verið og hvernig leiðir fólks geta legið saman. Þá var ég auðvitað í embættiserindum fyrir spænska sambandið en hann enn landsliðsmaður. Pavel er frábær náungi og ég er stoltur af honum. Ég man auðvitað einnig mjög vel eftir Jóni Arnóri Stefánssyni sem leikmanni og maður ber að sjálfsögðu virðingu fyrir leikmanni í þeim gæðaflokki. Nú er Tryggvi Hlinason að skapa sér nafn á Spáni sem er á vissan hátt erfitt fyrir erlenda leikmenn. Skömmu áður en ég hélt til Íslands las ég grein um Tryggva í spænsku blaði og þar var sagt frá því þegar hann kemur til Íslands í frí þá heldur hann heim á bóndabæ foreldranna. Hann er greinilega með gott fólk í kringum sig og þetta er áhugaverð saga sem stuðningsmennirnir eru áhugasamir um. Fólk elskar leikmenn sem eru alvöru og lifa lífi sínu á svipaðan hátt og allir aðrir. Leikmenn eins og Tryggvi eru góðar fyrirmyndir fyrir unga fólkið og það er mikilvægt á Spáni. Martin Hermannsson er einnig mjög þekktur í körfuboltanum á Spáni og þar er líklega sterkasta deildin í Evrópu.“ 

Eins og svo gott sem allir aðrir í körfuboltahreyfingunni í Evrópu hefur forsetinn tekið eftir árangri íslenska karlalandsliðsins. 

„Það má kannski segja að þetta sé ein ástæða þess að körfuboltaforystan í Evrópu fundar nú á Íslandi. Ísland er að verða körfuboltaþjóð og íslensku leikmennirnir verða æ þekktari á alþjóðlegum vettvangi. Ísland komst ekki á EM í fyrsta skipti fyrr en 2015 en hefur samt endurtekið afrekið tvívegis síðan þá. Svo ekki sé minnst á að liðið var einni þriggja stiga körfu frá því að komast í lokakeppni HM og ég gæti ímyndað mér að það hefði verið eitt af stærstu íþróttafrekum í sögu Íslands hefði skotið farið ofan í. Fólk á Spáni, sem dæmi, er í auknum mæli farið að tengja Ísland við körfubolta og nú eru mjög spennandi tímar fyrir körfuna á Íslandi. Við í körfuboltaforystunni reynum auðvitað að hvetja aðildaþjóðirnar til dáða í að byggja upp íþróttina enda er ávinningurinn margþættur þegar kemur að lýðheilsu og menningu,“ segir Jorge Garbajosa í samtali við kki.is