10 jún. 2026

Martin Hermannsson er kominn alla leið í úrslit í Þýskalandi með liðinu sínu Alba Berlin en þeir unnu sannfærandi 97-66 sigur í oddaleik gegn Bamberg í undanúrslitunum um þýska meistaratitilinn þar sem Martin skoraði 10 stig og átti 3 stoðsendingar. Fyrsti leikur úrslitanna verður næstkomandi föstudag, 12.júní, gegn deildarmeisturum Bayern München. Martin er að leika með Alba Berlin í annað sinn á ferlinum en hann hefur í þetta skiptið spilað í Berlínarborg frá árinu 2024. Fyrri samningur Martins í Berlín var frá 2018-2020 áður en hann hélt til Valencia á Spáni og lék þar til ársins 2024.

Elvar Már Friðriksson spilaði í Póllandi í vetur með Anwil Włocławek og eftir langt og strangt tímabil þar sem liðið endaði í 9.sæti deildarinnar hélt Elvar Már til La Laguna Tenerife á Spáni í maí síðastliðnum til að klára tímabilið og úrslitakeppnina þar. Tenerife lenti í 8.sæti deildarinnar en liðið sló stórlið og deildarmeistara Real Madrid gríðarlega óvænt út í 8-liða úrslitunum og eru nú að spila gegn frábæru liði Barcelona í undanúrslitum. Fyrsti leikur undanúrslitanna fór illa hjá Tenerife mönnum en Barcelona vann 33 stiga sigur, 100-67. Næsti leikur liðanna er fimmtudaginn 11.júní en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaviðureignina.
Tryggvi Snær Hlinason lék með sínum mönnum í Bilbao í 8-liða úrslitum sömu deildar en þeir féllu úr leik í síðustu viku gegn fyrsta atvinnumannafélagi Tryggva, Valencia. Tryggvi stóð fyrir sínu að vanda en slíkt dugði ekki til og Valencia leika því í hinni undanúrslitaviðureigninni gegn Joventut en fyrsti leikur þeirra liða er í dag, miðvikudaginn 10.júní. Tryggvi er búinn að leika á Spáni síðan 2017 og er því að klára sitt tíunda ár í atvinnumennskunni um þessar mundir.

Það er alltaf gaman að fylgjast með okkar fólki standa sig vel erlendis og við óskum Martin og Elvari góðs gengis í sinni baráttu í Þýskalandi og á Spáni á næstu dögum. Við hlökkum til að fá þessa þrjá drengi, sem og alla aðra, ferska í landsliðsverkefni í lok mánaðarins en draumurinn væri auðvitað að Martin og Elvar bæru gullmedalíur um hálsinn þegar þeir mæta til landsins.
📸IMAGO